Fotbolti.net
20.08.20 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gabriela Maldonado í Sindra (Staðfest)

Gabriela Maldonado.

Gabriela Maldonado.

Canon

Mynd: Sindri

Kvennaboltinn
Kvennalið Sindra hefur fengið til sín kólumbíska/þýska leikmannninn Gabrielu Maldonado.
Hún er miðvallarleikmaður og kemur frá Lousiana State University í Bandaríkjunum þar sem þú hefur spilað síðustu fjögur ár.

Gabriela er fædd árið 1996 og hefur hún spilað fyrir U17 og U18 landslið Kólumbíu en hún var einmitt partur af U17 á bæði HM og Copa America, Suður-Ameríkubikarnum.

Hún kemur til með að vera mikill liðsstyrkur fyrir Sindra sem er í áttunda sæti af níu liðum í 2. deild kvenna. Liðið er með sex stig eftir átta leiki spilaða.

Næsti leikur Sindra er gegn Álftanesi á laugardaginn og þar getur Gabriela mögulega leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.