Fotbolti.net
20.08.20 - 17:31
Brynjar Ingi Erluson

Leiknir fær hollenskan vængmann (Staðfest)

Dylan Chiazor, nýjasti leikmaður Leiknis.

Dylan Chiazor, nýjasti leikmaður Leiknis.

Canon

Mynd: Leiknir

Leiknismenn í Breiðholti hafa styrkt sig með hollenskum leikmanni, Dylan Chiazor. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Leikni á sunnudag þegar liðið tekur á móti Þrótti.

Leiknir situr í fjórða sæti Lengjudeildarinnar og er með í spennandi baráttu um að komast upp í efstu deild.
Af heimasíðu Leiknis:
Hollenski vængmaðurinn Dylan Chiazor hefur gengið í raðir Leiknis og er kominn með leikheimild.

Dylan er 22 ára gamall og kemur frá hollenska B-deildarfélaginu De Graafschap.

Hann kom hingað til Íslands í síðustu viku, fór í skimun þar sem út kom neikvæð niðurstaða og fór þá í sóttkví. Hann fór svo í aðra skimun í gær og aftur kom neikvæð niðurstaða svo hann er á sinni fyrstu hefðbundnu æfingu með liðinu í þessum skrifuðu orðum.

Hollendingarnir í okkar herbúðum eru því orðnir tveir en fyrir var markvörðurinn Guy Smit.

Leiknismenn bjóða Dylan velkominn í Breiðholtið og vonast til þess að hann reynist okkur vel út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.