Fotbolti.net
20.08.20 - 19:15
Brynjar Ingi Erluson

Xavier Mbuyamba til Chelsea (Staðfest)

Xavier Mbuyamba er mættur til Chelsea

Xavier Mbuyamba er mættur til Chelsea

Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski miðvörðurinn Xavier Mbuyamba gerði í dag þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea en hann kemur á frjálsri sölu frá Barcelona. Þetta kemur fram á heimasíðu enska félagsins.
Mbuyamba er 18 ára gamall og uppalinn hjá MVV Maastricht í Hollandi en hann spilaði 11 leiki með liðinu í hollensku B-deildinni árið 2016, þá aðeins 16 ára gamall.

Hann samdi við Barcelona á síðasta ári og lék með unglinga- og varaliði félagsins en spænska félagið leyfði honum að vera á frjálsri sölu á dögunum.

Mbuyamba skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Chelsea og mun æfa með varaliðinu áður en hann verður lánaður út fyrir komandi leiktíð.

Hollenski miðvörðurinn er talinn svipa til Virgil Van Dijk hjá Liverpool en hann á að baki einn leik fyrir U19 ára landslið Hollands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.