20.08.21 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danjuma til Villarreal (Staðfest)

Danjuma í leik með Bournemouth.

Mynd: EPA

Danjuma í leik með Bournemouth.

Mynd: EPA
Hollenski framherjinn Arnaut Danjuma hefur fengið félagaskipti frá Bournemouth til Villarreal.
Villarreal borgar 21,3 milljónir punda fyrir Danjuma og skrifar leikmaðurinn undir fimm ára samning við spænska félagið.
Danjuma skoraði 15 mörk og lagði upp sjö til viðbótar í 33 leikjum í Championship-deildinni á síðustu leiktíð. Hann var eftirsóttur í sumar en endaði að lokum hjá Villarreal þar sem hann mun spila undir stjórn Unai Emery.
Hinn 24 ára gamli Danjuma lék með NEC Nijmegen í Hollandi áður en hann fór til Bournemouth.
Hann á að baki tvo A-landsleiki fyrir hollenska landsliðið.