20.08.21 - 13:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Emil Pálsson lánaður til Sogndal (Staðfest)

Emil Pálsson

Mynd: Sarpsborg

Emil Pálsson

Mynd: Sarpsborg
Emil Pálsson hefur verið lánaður til Sogndal frá Sarpsborg út tímabilið í Noregi.
Emil hefur ekki verið að spila eins mikið og hann hefði viljað og er fenginn til Sogndal til að hjálpa liðinu í baráttunni um sæti í efstu deild.
Emil gekk í raðir Sarpsborg frá Sandefjord eftir síðasta tímabil.

„Það hefur verið mikil samkeppni á miðjunni hjá okkur og við erum á því að það sé best fyrir Emil að fá að spila hjá Sogndal," sagði Thomas Berntsen, yfirmaður íþróttamála hjá Sarpsborg.
Emil hafði byrjað sjö leiki hjá Sarpsborg í deildinni en var á bekknum í þarsíðasta leik og ekki í leikmannahópnum í síðasta leik.
Emil er 28 ára miðjumaður sem lék með FH og á láni hjá Fjölni áður en hann hélt í atvinnumennsku árið 2018.
Sarpsborg er í 12. sæti norsku deildarinnar með sautján stig eftir sextán leiki, fimm stigum fyrir ofan fallsæti. Sogndal er í fimmta sæti með 24 stig eftir fjórtán leiki í B-deildinni, tveimur stigum frá öðru sætinu og fimm frá efsta sæti.
Næsti leikur Sogndal er gegn Start á sunnudag.

Emil Pálsson lånes ut til Sogndal: https://t.co/G9xrpyEQTP
— Sarpsborg 08 (@Sarpsborg08) August 20, 2021