Fotbolti.net
20.08.21 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Gary Cahill til Bournemouth (Staðfest)

Gary Cahill til Bournemouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn reynslumikli Gary Cahill er orðinn leikmaður Bournemouth í ensku Championship-deildinni.

Cahill kemur á frjálsri sölu en hann yfirgaf Crystal Palace í upphafi mánaðarins þegar samningur hans rann út.

Cahill er 35 ára gamall og spilaði til að mynda lengi með Chelsea, einu besta félagsliði Englands.

Hann hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni.

Cahill á 61 A-landsleik að baki fyrir England og kemur með mikla reynslu inn í lið Bournemouth sem hefur farið vel af stað í Championship, næst efstu deild Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.