Fotbolti.net
20.08.21 - 07:38
Elvar Geir Magnússon

Ödegaard til Arsenal (Staðfest)

Ödegaard verður ekki klár í leikinn gegn Chelsea á sunnudag.

Ödegaard verður ekki klár í leikinn gegn Chelsea á sunnudag.

Canon

Mynd: Getty Images

Martin Ödegaard hefur verið keyptur til Arsenal frá Real Madrid fyrir um 30 milljónir punda.

Þessi 22 ára norski landsliðsmaður lék 20 leiki og skoraði tvö mörk fyrir Arsenal á síðasta tímabili þegar hann kom á láni. Nú er hann alfarið mættur á Emirates.
Fyrr í sumarglugganum hafði Arsenal tryggt sér Ben White, Albert Sambi Lokonga og Nuno Tavares.

Ödegaard verður ekki klár í leikinn gegn Chelsea á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann bíður eftir að öll pappírsmál verði kláruð.

Ödegaard varð barnastjarna í Noregi áður en Real Madrid fékk hann til sín frá Strömsgodset 2015. Hann lék aðeins átta aðalliðsleiki fyrir Madrídarliðið en var lánaður til Heerenveen, Vitesse og Real Sociedad auk Arsenal.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var ánægður með norska sóknarmiðjumanninn á síðasta tímabili og sagði það klárt mál að hann vildi fá hann alfarið til félagsins. Ödegaard verður í treyju númer átta.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.