Fotbolti.net
20.08.21 - 21:32
Victor Pálsson

Pereira lánaður til Flamengo (Staðfest)

Pereira lánaður til Flamengo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Andreas Pereira er genginn í raðir brasilíska liðsins Flamengo frá Manchester United.
Þessi félagaskipti hafa legið í loftinu undanfarna daga en Pereira skrifaði undir lánssamning út tímabilið.

Það var ekkert pláss fyrir Pereira í leikmannahópi Man Utd og mun nú reyna fyrir sér í heimalandinu.

Hann hefur áður spilað erlendis á láni og stóð sig ágætlega með Granada og Valencia á Spáni og síðar Lazio á Ítalíu.

Pereira er 25 ára gamall og hefur samtals skorað fjögur mörk í 75 leikjum fyrir enska liðið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.