20.08.21 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Pezzella til Betis (Staðfest) - Grand Theft Auto kynning

German Pezzella í leik á Copa America.

Mynd: EPA

German Pezzella í leik á Copa America.

Mynd: EPA
Real Betis hefur tilkynnt um kaup á argentínska landsliðsmanninum German Pezzella á mjög áhugaverðan hátt.
Birt var myndband þar sem sóknarmaðurinn Aitor Ruibal sést eins og karakter í Grand Theft Auto tölvuleiknum.
Í lok myndbandsins er hann mættur á leikvanginn þar sem hann hittir Guido Rodriguez (annan Argentínumann) áður en Pezzella fær í hendurnar nýju treyjuna sína.
Pezzella lék fyrir Real Betis 2015-2018 áður en hann hélt til Ítalíu. Hann var hluti af argentínska landsliðinu sem vann Copa America í sumar.
Real Betis endaði í sjötta sæti í La Liga á síðasta tímabili.

🛴🧉✍🆕
— Real Betis Balompié 🌴💚 (@RealBetis) August 19, 2021
GTA IV: Real Betis Edition. pic.twitter.com/LEsgfvKG5Y