Fotbolti.net
20.08.21 - 15:48
Elvar Geir Magnússon

Rafa Mir til Sevilla (Staðfest)

Rafa Mir til Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Rafa Mir er genginn í raðir Sevilla frá Wolverhampton Wanderers.

Úlfarnir fengu Mir frá Valencia 2018 en hann spilaði aðeins fjóra leiki fyrir félagið.

Spánverjinn átti frábært tímabil á lánssamningi hjá Huesca í La Liga á síðasta tímabili. Hann skoraði þrettán mörk en gat ekki komið í veg fyrir fall liðsins.
Í sumar vann hann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Tókýó en Spánn tapaði fyrir Brasilíu í úrslitaleiknum.

Hann skoraði þrennu gegn Fílabeinsströndinni í 8-liða úrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.