20.08.21 - 17:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ramsdale til Arsenal (Staðfest)

Mynd: Arsenal

Mynd: Getty Images

Mynd: Arsenal
Aaron Ramsdale er genginn í raðir Arsenal frá Sheffield United. Þetta var staðfest rétt í þessu. Hann kostar um 24 milljónir punda.
Ramsdale er 23 ára gamall markvörður sem var hluti af enska landsliðshópnum á EM í sumar.
Ramsdale hefur fallið tvö ár í röð úr úrvalsdeildinni með sínum liðum, fyrst með Bournemouth og nú í vor með Sheffield United.
Fyrir frammistöðuna á síðasta tímabili var hann valinn leikmaður ársins hjá Sheffield.
Ramsdale er uppalinn hjá Bolton og Sheffield United. Árið 2017 gekk hann í raðir Bournemouth og fyrir síðasta tímabil var hann fenginn aftur til Sheffield.
Hann verður númer 32 hjá Arsenal og mun veita Bernd Leno samkeppni um að vera aðalamarkvörður liðsins. Ramsdale ætti að geta verið í hópi Arsenal gegn Chelsea á sunnudag.
Rúnar Alex Rúnarsson verður væntanlega þriðji markvörður liðsins nema hann verði lánaður í burtu.
Ramsdale er annar leikmaðurinn sem Arsenal klárar kaupinn á í dag því Martin Ödegaard gekk í raðir félagsins frá Real Madrid í morgun.

Welcome to The Arsenal, @AaronRamsdale98 ❤️
— Arsenal (@Arsenal) August 20, 2021

Mynd: Getty Images