Fotbolti.net
20.08.22 - 09:40
Elvar Geir Magnússon

Vardy framlengdi við Leicester til 2024 (Staðfest)

#VardyParty2024

#VardyParty2024

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn reynslumikli Jamie Vardy hefur skrifað undir nýjan samning við Leicester sem gildir til sumarsins 2024. Vardy var á dögunum orðaður við Manchester United en ljóst er að hann er ekki á förum frá Leicester.

Vardy er 35 ára en í maí fagnaði hann því að hafa verið hjá Leicester í áratug. Hann er þriðji markahæsti leikmaður í sögu félagsins, með 164 mörk.

Með Leicester hefur hann unnið ensku úrvalsdeildina, FA bikarinn og Samfélagsskjöldinn og segist vera í skýjunum með nýjan samning.
„Þegar ég heyrði að félagið væri að skoða það að framlengja við mig var ljóst að það yrði bara ein niðurstaða. Ég var alltaf að fara að skrifa undir. Ákvörðunin var auðveld," segir Vardy.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.