Fotbolti.net
20.08.26 - 08:30
Albert Guðmundsson

38 umferðir - Hvort á að setja fyrirliðabandið á Haaland eða Bruno?

Haaland verður eflaust vinsælasti fyrirliði fyrstu umferðar fantasy í ár

Haaland verður eflaust vinsælasti fyrirliði fyrstu umferðar fantasy í ár

Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn byrjar að rúlla annað kvöld og þá hefst vinsælasti draumaliðsleikur þjóðarinnar, Fantasy Premier League.

38 umferðir er nýtt fantasy hlaðvarp Fótbolta.net, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrstu þrír þættir tímabilsins eru komnir inn á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net í hljóði og mynd.

38 umferðir x Fótbolti.net deildin er komin í loftið og er kóðinn: 10k1ov

Glæsilegir vinningar fyrir efstu sætin í boði samstarfsaðila 38 umferða: Visitor, Thule, Boltamaðurinn, Bullseye og Matarkjallarinn.
Nýtt Fantasy tímabil hefst á föstudagskvöld þegar Englandsmeistarar Arsenal taka á móti nýliðum Coventry. Stærsta ákvörðun fantasy spilara fyrir fyrstu umferðar verður líklega að velja fyrirliða á milli Erling Haaland og Bruno Fernandes. Báðir eiga góðan leik í fyrstu umferð sem gefa þeim gott tækifæri á því að byrja tímabilið með látum. Gabriel Magalhães gæti einnig verið spennandi kostur fyrir hugrakka spilara sem vilja spila leikinn gegn meginstraumnum.

Öruggi kosturinn: Erling Haaland

Haaland og Manchester City taka á móti Bournemouth á Etihad-leikvanginum á sunnudag. Norðmaðurinn skoraði 27 mörk, lagði upp önnur 8 og varð stigahæsti leikmaður Fantasy á síðasta tímabili með 239 stig.

Haaland hefur jafnan byrjað öll tímabil af miklum krafti og hefur verið stigahæsti leikmaður Fantasy eftir fyrstu sex umferðirnar á öllum fjórum tímabilum sínum hjá Manchester City.

Haaland kostar 15.5m og er í tæplega 70% liða. Búast má við að hann verði langvinsælasti fyrirliðinn í fyrstu umferðinni. Ef hann skorar tvö eða fleiri mörk gætu þeir sem veðja gegn honum lent í eltingaleik strax í fyrstu umferð.

Bruno mætir auðveldari mótherja

Bruno Fernandes heimsækir nýliða Hull í fyrsta leik. Bruno skoraði 9 mörk, bætti stoðsendingamet deildarinnar og endaði aðeins fjórum stigum á eftir Haaland í Fantasy á síðasta tímabili.

Hull komst ekki upp með sannfærandi hætti. Liðið endaði í sjötta sæti Championship-deildarinnar með 73 stig og tók neðsta sætið í umspilinu á lokadegi tímabilsins.

Undirliggjandi tölfræði Hull gefur eigendum Bruno enn meiri ástæðu til bjartsýni. Andstæðingar liðsins söfnuðu 75,5 í xG án vítaspyrna í Championship-deildinni, samt sem áður fékk Hull aðeins á sig 62 mörk úr þeim færum. Enginn í deildinni fékk meiri hjálp frá markmanni sínum og slakri færanýtingu andstæðinganna. Óvíst er hvort það haldi áfram þegar liðið mætir sóknarmönnum úrvalsdeildarinnar.

Bruno skilaði 129 stigum í síðustu 17 umferðunum eftir að Carrick tók við United, eða 7,6 stigum að meðaltali í leik. Hann skoraði eða lagði upp í 14 af þessum 17 leikjum og náði átta sinnum tveggja stafa stigaskori í Fantasy á þeim tíma.

Portúgalinn tekur vítaspyrnur, hornspyrnur og stóran hluta aukaspyrna United. Hann getur auk þess fengið stig þegar liðið heldur hreinu, fleiri stig fyrir hvert mark en Haaland og möguleiki á varnarframlags-stigum. Þrátt fyrir að spila á útivelli gæti Bruno endað sem besta fyrirliðaval umferðarinnar.

Gabriel fyrir þá allra hugrökkustu

Gabriel Magalhães er óvenjulegur en áhugaverður þriðji kostur þegar Arsenal tekur á móti Coventry á heimavelli.

Brasilíumaðurinn safnaði 209 stigum í Fantasy á síðasta tímabili, sem var þriðja besta frammistaða varnarmanns í sögu leiksins. Hann skoraði 3 mörk, lagði upp 5, hélt hreinu 18 sinnum og bætti við 22 stigum fyrir varnarframlög. Gabriel skilaði framlagi í 24 af 30 byrjunarliðsleikjum sínum.

Arsenal ætti að vera sigurstranglegt gegn nýliðum Coventry og líkurnar á hreinu laki eru miklar. Gabriel er jafnframt einn hættulegasti skallamaður deildarinnar í föstum leikatriðum. Hreint lak og mark úr hornspyrnu gætu auðveldlega skilað honum 15 stigum eða meira áður en fyrirliðastigin eru tvöfölduð.

Áhættan er þó augljós. Varnarmaður hefur færri leiðir að stigum en Haaland og Bruno, og eitt Coventry-mark gæti eyðilagt drauminn á stóru stigaskori hjá Gabriel.

Haaland býður upp á mestu markahættuna og öryggið sem fylgir vinsælasta fyrirliðanum. Bruno fær auðveldasta mótherjann á pappír og hefur skilað ótrúlegum stöðugleika undir stjórn Carrick. Gabriel gæti fengið bæði hreint mark og sóknarstig gegn nýliðum Coventry.

Fantasy spilarar þurfa því að spyrja sig hvað vegur þyngst, markaógn Haaland, fjölbreyttar leiðir Bruno að stigum eða möguleiki Gabriel á stórskori ef honum tekst að halda hreinu og koma að marki sóknarlega?




Fylgstu með hlaðvarpinu 38 umferðum í allan vetur þar sem við svörum stóru fantasy spurningunum þar á meðal spurningunni um fyrirliðaval fyrir allar 38 umferðir tímabilsins.

Bruno er líklega fjölhæfasti leikmaðurinn þegar kemur að stigasöfnun í fantasy

Bruno er líklega fjölhæfasti leikmaðurinn þegar kemur að stigasöfnun í fantasy

Canon

Mynd: EPA

Gabriel er einn besti varnarmaður sem fantasy leikurinn hefur séð og er því verðmiðinn ríflegur í ár

Gabriel er einn besti varnarmaður sem fantasy leikurinn hefur séð og er því verðmiðinn ríflegur í ár

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.