Fotbolti.net
20.08.26 - 07:35
Elvar Geir Magnússon

Kone til Manchester?

Manu Kone í leik með franska landsliðinu.

Manu Kone í leik með franska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Það er spenna í lofti enda fer enska úrvalsdeildin af stað á morgun. Glugginn er galopinn og ýmislegt í gangi. BBC tók saman helsta slúðrið.
Manchester City sýnir nú Manu Kone (25), frönskum miðjumanni Roma, áhuga en hann hefur í sumar verið orðaður við grannana í Manchester United. (Mail)

Aston Villa hefur áhuga á enska varnarmanninum Tosin Adarabioyo (28) hjá Chelseasem mögulegan kost til að fylla í skarð Ezri Konsa (28) sem er á leið til Arsenal. (Sky Sports)

Þá hefur Benfica sett sig í samband við Chelsea vegna áhuga á Adarabioyo. (Sun)

Tottenham er í viðræðum um möguleg kaup á brasilíska kantmanninum Savinho (22) og egypska framherjanum Omar Marmoush (27) frá Manchester City. (Athletic)

Barcelona fylgist með samningaviðræðum Harry Kane (33) við Bayern München en enski landsliðsfyrirliðinn er kominn inn í lokaár núgildandi samnings við Þýskalandsmeistarana. (Mail)

Sunderland gæti slegið félagsmet með því að virkja 51 milljón punda riftunarákvæði í samningi mósambíska kantmannsins Geny Catamo (25) við Sporting Lissabon. (TeamTalk)

Everton hefur áhuga á senegalska kantmanninum Assane Diao (20) sem gæti kostað milli 50-60 milljónir punda. (TeamTalk)

Gabriel Jesus (29), framherji Arsenal, er ekki að leitast eftir því að fara til Napoli en ítalska félagið hefur áhuga á Brassanum. (Mirror)

Juventus og Napoli hafa bæði áhuga á Joshua Zirkzee (25), hollenskum framherja Manchester United. Bæði ítölsku félögin þurfa að selja áður en þau geta gert tilboð. (Gazzetta dello Sport)

Hull City er nálægt því að ná samkomulagi við Real Betis um spænska kantmanninn Pablo Garcia (20) hjá Real Betis. (Sport)

Hull, Ipswich Town og Al-Ittihad vilja öll fá marokkóska miðjumanninn Azzedine Ounahi (26) frá Girona. (Mundo Deportivo)

Arsenal er að vinna að því að fá gíbralska kantmanninn James Scanlon (19) og enska hægri bakvörðinn Habeeb Ogunneye (20) frá Manchester United. (Telegraph)

Barcelona hefur sett í biðstöðu að reyna við Julian Alvarez (26) frá Atletico Madrid og er að skoða aðra kosti í sóknarlínuna. (ESPN)

Atletico Madrid mun líklega skáka Manchester United með því að fá spænska varnarmanninn Jorge Salinas (19) frá Racing Santander. (TeamTalk)
Villa hefur áhuga á Adarabioyo.

Villa hefur áhuga á Adarabioyo.

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane, fyrirliði Englands.

Harry Kane, fyrirliði Englands.

Canon

Mynd: EPA

Fer Zirkzee aftur til Ítalíu?

Fer Zirkzee aftur til Ítalíu?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.