Fotbolti.net
19.08.26 - 22:20
Ívan Guðjón Baldursson

Delap og Tosin missa treyjunúmerin

Delap og Tosin missa treyjunúmerin
Canon

Mynd: EPA

Chelsea mennirnir Liam Delap og Tosin Adarabioyo eru búnir að missa treyjunúmerin frá því á síðustu leiktíð þar sem þeir eru líklega á förum frá stórveldinu.
Delap alltof dýr - Snúa sér að Moise Kean
TENGT EFNI

Delap alltof dýr - Snúa sér að Moise Kean

Brasilíski framherjinn Joao Pedro fær treyju númer 9 hjá Delap, sem þarf að sætta sig við tólfuna ef hann verður ekki seldur eða lánaður út fyrir mánaðamót.

Delap skoraði aðeins 2 mörk og gaf 4 stoðsendingar í 41 leik með Chelsea á síðustu leiktíð og er ekki í byrjunarliðsáformum Xabi Alonso. Búast má við að Joao Pedro byrji í fremstu víglínu með Danny Welbeck til vara.

Valentín Barco fær treyju númer 4 frá Tosin, sem mun bera 38 á bakinu í staðinn. Allar líkur eru á að Tosin skipti um félag fyrir gluggalok þar sem félög víðsvegar úr Evrópu eru áhugasöm.

Nicolas Jackson er enn með treyju númer 15 en góðar líkur eru á að hann skipti um félag á næstu vikum.

Enzo Fernández sem hefur verið orðaður við Manchester City er áfram núnmer 8.

Vilja Tosin sem arftaka fyrir Konsa
TENGT EFNI

Vilja Tosin sem arftaka fyrir Konsa



Delap og Tosin missa treyjunúmerin
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.