20.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Leikmaður Cagliari vakinn úr dái

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franski framherjinn Yael Trepy hefur verið vakinn úr dái og tekinn úr öndunarvél tveimur dögum eftir að hafa verið dreginn meðvitundarlaus úr einkasundlaug.

TENGT EFNI
Leikmaður Cagliari á gjörgæslu eftir að hafa misst meðvitund í sundlaug
Atvikið átti sér stað í sundlaug í stóru einbýlishúsi í Sardiníu og var tvítugur Trepy fluttur á spítala með þyrlu.
Hann var fljótur að ná fullri meðvitund eftir að hafa verið vakinn úr dái en á í vandræðum með andardrátt og er því enn á gjörgæslu.
Samkvæmt heimildum BBC var Trepy að njóta lífsins í sundlaug með vinum sínum en átti í erfiðleikum með að halda sér á floti þegar komið var í dýpri part laugarinnar.
Trepy hefur verið samningsbundinn Cagliari síðustu fjögur ár og á önnur fjögur ár eftir af samningi sínum við félagið.