Fotbolti.net
19.08.26 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson

Dýrmæt stig fyrir Vålerenga og HB Köge

Dýrmæt stig fyrir Vålerenga og HB Köge
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins í Evrópu þar sem Íslendingalið Vålerenga bar sigur úr býtum gegn Hönefoss í efstu deild í Noregi.
Fanney Inga Birkisdóttir varði mark Vålerenga og lék Arna Eiríksdóttir allan leikinn í hjarta varnarinnar í 2-1 sigri sem bætir stöðu liðsins til muna í toppbaráttunni.

Vålerenga er í fjórða sæti með 25 stig eftir 14 umferðir, aðeins tveimur stigum frá Evrópusæti.

Í efstu deild kvenna í Danmörku sat Amanda Jacobsen Andradóttir allan tímann á bekknum í sigri hjá HB Köge á útivelli gegn Bröndby, á meðan Hafrún Rakel Halldórsdóttir fékk að spila síðasta hálftímann í tapliði heimakvenna.

Í karlaboltanum vann Varnamo góðan sigur á útivelli gegn Växjö Norra í sænska bikarnum en Logi Hrafn Róbertsson var ekki í hóp, ekki frekar en Hólmbert Aron Friðjónsson hjá Gwangju FC sem sló Ulsan Citizen úr leik í kóreska bikarnum.

Valerenga 2 - 1 Hönefoss

Bröndby 1 - 2 HB Köge

Vaxjo Norra 1 - 3 Varnamo

Ulsan Citizen 0 - 1 Gwangju
Dýrmæt stig fyrir Vålerenga og HB Köge
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.