19.08.26 - 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Hagstæð úrslit fyrir Garðsmenn

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fjórum fyrstu leikjum dagsins er lokið í gríðarlega spennandi 3. deild þar sem hart er barist á báðum endum stöðutöflunnar.
Þetta var frábær dagur fyrir Víði Garði í titilbaráttunni. Garðsmenn heimsóttu Árbæ og komust tveimur mörkum yfir snemma leiks, þegar Ísak John Ævarsson setti tvennu með afar stuttu millibili.
Árbæingum tókst ekki að valda miklum usla og urðu lokatölur 2-4 fyrir Víði, sem trónir á toppi deildarinnar með þriggja stiga forystu eftir sigurinn. Liðið á 39 stig eftir 18 umferðir á meðan Árbær er svo gott sem fallinn niður um deild. Árbæingar eru í neðsta sæti með 8 stig.
Reynir Sandgerði er í öðru sæti eftir jafntefli í toppbaráttuleik gegn KH. Sandgerðingar náðu forystunni og lentu svo undir áður en þeir settu jöfnunarmark á 65. mínútu.
Reynismenn eru með 36 stig, einu stigi meira heldur en KH sem situr í þriðja sæti og er jafnt Tindastóli á stigum. Stólarnir gerðu jafntefli við KF í dag.
Tíu leikmenn Sindra höfðu að lokum betur gegn Hetti og fjarlægðust fallbaráttuna með dýrmætum sigri. Sindri er núna fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar fjórar umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Árbær 2 - 4 Víðir
0-1 Ísak John Ævarsson ('14 )
0-2 Ísak John Ævarsson ('15 )
1-2 Stefán Bogi Guðjónsson ('49 )
1-3 Dominic Lee Briggs ('51 )
1-4 Edon Osmani ('56 )
2-4 Stefán Bogi Guðjónsson ('79 )
Reynir S. 2 - 2 KH
1-0 Jordan Smylie ('4 )
1-1 Tristan Snær Daníelsson ('18 )
1-2 Haukur Ásberg Hilmarsson ('28 )
2-2 Sævar Gylfason ('65 )
KF 1 - 1 Tindastóll
1-0 Jhoel Adrian Sarraude ('90 )
1-1 Jóhann Daði Gíslason ('93 )
Höttur 1 - 3 Sindri
0-1 Jóhann Frans Ólason ('24 )
0-2 Fuseini Issah ('70 )
1-2 Helgi Magnús Gunnlaugsson ('90 )
1-3 Fuseini Issah ('90 )
Rautt spjald: Fredrick Delali, Sindri ('48)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víðir | 18 | +28 | 39 |
| 2 | Reynir S. | 18 | +19 | 36 |
| 3 | KH | 18 | +28 | 35 |
| 4 | Tindastóll | 18 | +13 | 35 |
| 5 | KV | 18 | +2 | 29 |
| 6 | KF | 18 | -5 | 23 |
| 7 | Höttur | 18 | -4 | 22 |
| 8 | Augnablik | 18 | -5 | 21 |
| 9 | Sindri | 18 | -11 | 20 |
| 10 | KÁ | 18 | -24 | 19 |
| 11 | Ýmir | 18 | -15 | 16 |
| 12 | Árbær | 18 | -26 | 8 |