Fotbolti.net
20.08.26 - 10:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Líklegt byrjunarlið Víkings - Ef hann getur staðið í báðar lappir verður hann frammi

Aron Elís kom inn á sem varamaður gegn FH.

Aron Elís kom inn á sem varamaður gegn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 18:00 á Víkingsvelli hefst fyrri leikur Víkings og Borac Banja Luka í umspilinu um sæti í Sambandsdeildinni. Seinni leikurinn fer fram í Banja Luka eftir viku.

Á meiðslalistanum hjá Víkingi eru þeir Elías Már Ómarsson, Óskar Borgþórsson, Tarik Ibrahimagic og Daníel Hafsteinsson.

Sveinn Aron Guðjohnsen er skráður í Evrópuhópinn og gæti tekið þátt í sínum fyrsta leik eftir komuna í Víking. Varnarmaðurinn Sölvi Stefánsson og markvörðurinn Pálmi Rafn Arinbjörnsson eru sömuleiðis skráðir í hópinn.
Efar þátttöku Daníels í einvíginu - „Óþarfi að horfa í þann leik“
TENGT EFNI

Efar þátttöku Daníels í einvíginu - „Óþarfi að horfa í þann leik“

Sölvi Geir, þjálfari Víkings, talaði í gær um að nýta augnablikið sem væri með Víkingum eftir fína frammistöðu gegn FH í Bestu deildinni í síðasta leik og góðan sigur gegn Thun síðasta fimmtudag.

Við spáum því að tvær breytingar verði á liði Víkings frá leiknum gegn FH: Aron Elís Þrándarson komi inn fyrir Viktor Örlyg Andrason á miðsvæðinu og Karl Friðleifur Gunnarsson komi inn í hægri bakvörðinn. Viktor kemur að sjálfsögðu til greina í liðið og er kostur i margar stöður á vellinum. Við spáum því að Sölvi kjósti Aron til að fá örlítið meiri hæð og styrk sem gæti nýst í fyrirgjöfum. Ef Karl Friðleifur er ekki klár í slaginn eru Davíð Örn Atlason og Hrannar Snær Magnússon kostir í hægri bakvarðarstöðuna.

Þeir Stígur Diljan og Ármann Ingi hafa spilað nokkuð vel á köntunum í síðustu leikjum en leikmenn eins og Daði Berg og Hrannar Snær gera tilkall í að byrja. Ef Sölvi vill ýta Helga Guðjónssyni á kantinn þá er Sveinn Gísli Þorkelsson líklegur kostur í varnarlínuna. Nikolaj Hansen er markahæsti leikmaður í sögu íslenskra liða í Evrópu og ef hann getur staðið í báðar lappir verður hann frammi.

Nikolaj Hansen sneri aftur í byrjunarliðið gegn FH.

Nikolaj Hansen sneri aftur í byrjunarliðið gegn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er komið að fyrsta byrjunaliðsleik Hrannars?

Er komið að fyrsta byrjunaliðsleik Hrannars?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.