Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 20. september 2020 16:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Stórsigur hjá Fjarðab/Hetti/Leikni
Jóhanna Lind skoraði tvö.
Jóhanna Lind skoraði tvö.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjarðab/Höttur/Leiknir 4 - 0 Álftanes
1-0 Jóhanna Lind Stefánsdóttir ('14)
2-0 Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir ('36)
3-0 Shakira Duncan ('48)
4-0 Jóhanna Lind Stefánsdóttir ('86)

Sameiginlegt lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis F. vann stórsigur á Álftanesi í 2. deild kvenna í dag. Leikið var í Fjarðabyggðarhöllinni.

Jóhanna Lind Stefánsdóttir kom heimakonum á bragðið snemma og var staðan 2-0 í hálfleik eftir mark Sigmundínu Söru Þorgrímsdóttur á 36. mínútu.

Shakira Duncan gerði út um leikinn á 48. mínútu og Jóhanna Lind batt lokahnútinn á 86. mínútu með öðru marki sínu.

Lokatölur 4-0 og er Fjarðab/Höttur/Leiknir komið upp að hlið Grindavíkur í öðru sæti með þessum sigri. Grindavík á þó leik til góða. Álftanes er í fimmta sæti með 17 stig.
Athugasemdir
banner