Fotbolti.net
20.10.15 - 11:44
Elvar Geir Magnússon

Guðmundur Atli í Breiðablik (Staðfest)

Guðmundur Atli í leik með HK í fyrra.

Guðmundur Atli í leik með HK í fyrra.

Canon

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

<i>„Mér fannst ég skulda sjálf­um mér að taka slag­inn í Pepsi-deild­inni og ég hlakka til að tak­ast á við nýja áskor­un,\"</i> segir Guðmundur Atli Steinþórsson við mbl.is en þar staðfestir hann að hafa gert tveggja ára samning við Breiðablik.
Þessi 28 ára leikmaður hefur skorað grimmt fyrir HK-inga síðustu ár og hafði möguleika á að fara í Pepsi-deildina í fyrra. Hann valdi þá að halda tryggð við HK og spila eitt sumar í viðbót með liðinu.

Arnar Grétarsson og hans menn í Breiðabliki hafa verið í leit að sóknarmanni en flest bendir til þess að Jonathan Glenn leiki ekki hér á landi næsta sumar. Hann hefur verið orðaður við Lilleström í Noregi.

Blikar áttu gott sumar en það var fyrsta tímabil þeirra undir stjórn Arnars Grétarssonar. Liðið hafnaði í öðru sæti Pepsi-deildarinnar, tveimur stigum eftir Íslandsmeisturum FH. HK hafnaði í áttunda sæti 1. deildarinnar.

Breiðablik verður með fréttamannafund klukkan 16 í dag í Kópavogi.

Heimild: mbl.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.