Það sást til Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United, á æfingasvæði Manchester United í gær.
Manchester United tekur á móti Liverpool klukkan 15:30 í dag og sást til Sir Alex á spjalli við Ole Gunnar Solskjær, núverandi stjóra United í gær.
Manchester United tekur á móti Liverpool klukkan 15:30 í dag og sást til Sir Alex á spjalli við Ole Gunnar Solskjær, núverandi stjóra United í gær.
ManchesterEveningNews tók saman að Ferguson mætti Liverpool alls 64 sinnum sem stjóri United. United vann 29 leiki, 14 sinnum varð jafntefli og Liverpool sigraði 21 leik.
Solskjær sagði í viðtali í vikunni að ef Ferguson óskaði eftir að fá að taka ræðu í klefanum hjá United fyrir leik þá væri það sjálfsagt mál.
Fantastic to see Sir Alex at today's #MUAcademy U18s game alongside Ole and @Carras16 🔴#MUFC pic.twitter.com/4xHSTI0vxn
— Manchester United (@ManUtd) October 19, 2019
Athugasemdir