Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 20. október 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Nile Ranger kominn til AC United í utandeildinni (Staðfest)
Mynd: Twitter
Knattspyrnuferill Nile Ranger hefur legið beina leið niður á við eftir fyrstu árin með aðalliði Newcastle sem lofuðu góðu. Hann er nýbúinn að skrifa undir hjá utandeildarfélaginu AC United eftir tvö ár með Southend United í C-deildinni.

Ranger var aðeins 18 ára þegar hann ruddi sér leið inn í byrjunarlið Newcastle og spilaði 25 leiki er félagið komst upp úr Championship deildinni 2010. Hann spilaði svo 24 leiki á fyrsta úrvalsdeildartímabili Newcastle en hefur ekki tekið þátt í leik í efstu deild á Englandi í rúmlega sjö ár.

Hjá Southend skoraði hann 8 mörk í 27 leikjum á sínu fyrsta tímabili, líkt og hann gerði hjá Swindon tveimur árum fyrr, en stærsta vandamál Ranger hefur verið að halda aga og standa sig vel yfir langan tíma.

Framherjinn er ekki með hausinn á réttum stað og getur því ekki lifað lífi atvinnumanns í knattspyrnu. Á tíma sínum hjá Newcastle var Ranger meðal annars handtekinn fyrir líkamsárás og ölvun og óspektir á almannafæri. Þegar hann yfirgaf Newcastle loks 2013, eftir 62 leiki með aðalliðinu, var hann aðeins búinn að skora þrjú mörk fyrir félagið en fá á sig fimm ákærur.

Ranger, sem er mikið fyrir húðflúr og er meðal annars með broskarl húðflúraðan á innanverða neðri vörina, er með nokkuð þykka sakaskrá og var í fangelsi yfir sumarið 2017.
Athugasemdir
banner