20.10.26 - 15:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sonur Túfa bar fyrirliðabandið hjá serbneska unglingalandsliðinu

Novak Tufegdzic með fyrirliðabandið.

Mynd: Túfa

Bræðurnir Stefan og Novak.

Mynd: Aðsend

Túfa þjálfaði síðast á Íslandi í fyrra þegar hann stýrði Val.

Mynd: Malmö

Stefan byrjaður að skora með U17 liði Malmö.

Mynd: Túfa

Novak Tufegdzic með fyrirliðabandið.

Mynd: Túfa
Þjálfarinn Srdjan Tufegdzic er þessa stundina búsettur ásamt fjölskyldu sinni í Malmö. Þar spila synir hans, Stefan (2010) og Novak (2012), með unglingaliðum Malmö. Stefan er kominn á unglingasamning hjá félaginu.
Túfa, eins og þjálfarinn er oftast kallaður, er fyrrum leikmaður og þjálfari KA og hann stýrði einnig Grindavík og Val hér á landi. Hann var síðast þjálfari Värnamo í Svíþjóð en var látinn fara þaðan snemma sumars. Fótbolti.net ræddi við Túfa um lífið í Malmö og strákana.

Búa í Malmö
„Við fjölskyldan höfum verið í Malmö síðan um miðjan ágúst, við náum að styðja vel við strákana sem eru að koma sér fyrir í nýjum aðstæðum. Konan hefur grínast í mér með að hún hafi fylgt mér allt sitt líf en nú sé komið að því að ég fylgi strákunum aðeins. Lífið er fínt, erum búin að koma okkur fyrir og búin að græja allt sem fylgir því að koma sér fyrir í nýju landi. Það hjálpar strákunum að þeir kunna bæðir sænskuna, þeir voru annað árið úti hjá mér þegar ég var hjá Öster. Stefan er byrjaður að skora mörk, hefur raðað inn mörkum í síðustu leikjum með U17 og Novak er að æfa og spila upp fyrir sig."
„Malmö er með bestu akademíuna í Svíþjóð, félagið breytti til hjá sér fyrir 3-5 árum síðan, horfðu til Danmerkur og reyna að fylgja því módeli. Þar eru stóru liðin að keppast um titla en á sama tíma selja marga leikmenn frá sér. Áður var Malmö sem ríkasta félagið alltaf að kaupa bestu leikmennina og markmiðið var að sækja titlana. Núna er stefnan líka að selja leikmenn. Frá því að ég byrjaði að fylgjast með sænska boltanum þá hef ég ekki séð jafnmarga uppalda leikmenn spila með Malmö."
Bar fyrirliðabandið hjá serbneska landsliðinu
Túfa er eðlilega mjög stoltur af strákunum sínum og segir það hafa komið sér mjög á óvart að sjá son sinn bera fyrirliðabandið í leik hjá U15 landsliði Serba. Novak, sem er yngsti leikmaður í sögu Bestu deildarinnar, bar í síðasta mánuði fyrirliðabandið þegar U15 landslið Serbíu lék gegn Tyrkjum í Þróunarmóti UEFA. Hann verður svo U15 landsliðshópi Íslands sem kemur saman í næstu viku.
„Hann var eini strákurinn hjá liði utan Serbíu sem var valinn í hópinn, annars komu allir úr fjórum liðum í heimalandinu," segir Túfa.
„Hann hafði mætt á æfingar nokkrum vikum á undan, þá voru Serbar sem spila erlendis kallaðir á æfingar og bæði Stefan og Novak fóru og Novak var einn af yngstu strákunum. Þjálfarinn lét mig vita að hann hefði verið mjög ánægður með Novak og ætlaði að velja hann í þennan hóp."
Strákarnir höfðu fengið smjörþefinn af því að æfa með öðrum Serbum á síðasta ári þegar þeir mættu á æfingar hjá Rauðu Stjörnunni, stærsta félagi Serbíu.
„Novak spilaði vel og eftir lokaleikinn sagði þjálfarinn mér að Novak hefði hagað sér þannig að hann hefði verðlaunað hann með fyrirliðabandinu. Ég var í sjokki, svona er ekki algengt í Serbíu, sérstaklega hjá einhverjum sem þekkti lítið til hópsins. Hann fer svo til Austurríkis í næstu viku og spilar með Íslandi á móti Austurríki, Spáni og Grikklandi og Novak er mjög spenntur fyrir því."
Serbneskt blóð en aldnir upp á Íslandi
Hvernig sérð þú þetta varðandi Serbíu eða Ísland í framtíðinni?
„Við erum róleg með það. Þeir eru aldnir upp á Íslandi og allir vinir þeirra eru þaðan. En í blóðinu er Serbía og það hefur ekki breyst. Ég var mjög ánægður að Novak fékk kallið frá báðum, mjög spennandi fyrir 14 ára strák og sterkar rætur til beggja landa. Hann má spila fram að keppnisleikjum með báðum liðum en svo verður mögulega að velja fyrir undankeppnir, sama gildir um Stefan. Þeir gætu þó held ég breytt aftur á milli aldurshópa. Við erum róleg og þegar þeir eldast munu þeir kannski þurfa að taka ákvörðun."
Þú ert ekkert harður að þið séuð Serbar og spilið fyrir Serbíu?
„Við erum búin að vera nánast jafnlengi á Íslandi og heima í Serbíu. Allir sem þekkja mig vita hvernig ég horfi á Ísland, það er alltaf mitt annað land. Þegar þeir þurfa að velja þá verða þeir orðnir nógu stórir og þroskaðir til að gera það sjálfir," segir Túfa.
Viðtalið við Túfa er lengra og verður næsti hlut þess birtur hér á síðunni seinna í dag.