Fotbolti.net
19.10.26 - 21:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Maddison: Dreymir um svona augnablik á dimmum dögum

Maddison: Dreymir um svona augnablik á dimmum dögum
Canon

Mynd: EPA

James Maddison skoraði stórkostlegt mark í fyrsta sigri Tottenham á tímabilinu. Tottenham vann Coventry 3-1 en Maddison kom liðinu yfir þegar hann skoraði með glæsilegu viðstöðulausu skoti fyrir utan teiginn í fjærhornið.

Maddison hefur verið gríðarlega óheppinn með meiðsli. Dejan Kulusevski kom inn á í kvöld en hann spilaði sinn fyrsta leik í rúmt ár vegna meiðsla.
„Mig dreymir um svona augnablik og mörk á dimmum dögum dögum í meiðslunum. Það er ljósið í enda ganganna," sagði Maddison.

„Þess vegna var ég svona tilfinningaríkur og stoltur af Dejan Kulusevski í dag. Ég vissi nákvæmlega hvernig honum leið að stíga aftur á völlinn eftir þetta langan tíma í burtu. Svona augnablik og mörk gerir þetta allt þess virði."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.