Fotbolti.net
20.11.13 - 15:45
Arnar Daði Arnarsson

Edvard Börkur í Leikni (Staðfest)

Edvard Börkur í Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edvard Börkur Óttharsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Leikni. Edvard gengur til liðs við Leikni frá Val. Hann lék sem lánsmaður hjá Tindastól síðustu tvö sumur.
Edvard Börkur er uppalinn hjá Val en fékk fá tækifæri hjá liðinu og hefur verið lánaður í 1.deildina síðustu sumur. Hann á að baki 42 deildarleiki í 1.deildinni. Hann lék einnig seinni hluta sumars 2011 með Tindastól í 2.deildinni.

Edvard er fæddur árið 1992 og leikur sem miðvörður. Hann er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Leikni í vetur en áður höfðu Leiknismenn samið við Eirík Inga frá KF.

Þetta var staðfest á heimasíðu Leiknis fyrr í dag.

Heimild: Heimasíða Leiknis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.