20.11.13 - 11:02
Daníel Freyr Jónsson
Hólmbert Aron farinn til Celtic (Staðfest)

Hólmbert Aron Friðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmbert Aron Friðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn í raðir skoska félagsins Celtic frá Fram. Þetta staðfesti Celtic með tilkynningu nú rétt í þessu.
Kaupverðið er talið nema 100.000 pundum, eða því sem jafngildir tæplega 20 milljónum íslenskra króna.

Hólmbert skrifaði undir fjögurra ára samning hjá félaginu og verður hann löglegur með félaginu eftir rúman mánuð, eða þegar félagaskiptaglugginn opnar 1. janúar.
,,Ég er virkilega ánægður með að hafa skrifað undir hjá jafn stóru félagi og Celtic. Þetta er draumur að rætast og það er ótrúlegt að vera hérna. Ég get ekki beðið eftir því að byrja,\" sagði Hólmbert við heimasíðu Celtic.
Hólmbert, sem er á 20. aldursári, var markahæsti leikmaður Fram í Pepsi-deildinni í sumar með 10 mörk. Liðið slapp þá naumlega frá falli, en varð þó bikarmeistari eftir siguri á Stjörnunni.