Fotbolti.net
20.11.15 - 18:30
Arnar Geir Halldórsson

Agnar Darri í Þór (Staðfest)

Agnar í leik gegn Þór. Hann er nú genginn til liðs við félagið

Agnar í leik gegn Þór. Hann er nú genginn til liðs við félagið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agnar Darri Sverrisson er genginn til liðs við 1.deildarlið Þórs frá Akureyri.
Agnar Darri kemur til Akureyrarliðsins frá Pepsi deildarliði Víkings R. en Agnar kom við sögu í níu leikjum Víkinga í Pepsi deildinni á síðustu leiktíð og gerði í þeim þrjú mörk.

Agnar hefur áður leikið á landsbyggðinni en hann lék tvö tímabil með Magna frá Grenivík á sínum tíma og var svo lánaður til BÍ/Bolungarvíkur frá Víkingum seinni hluta sumars árið 2014.

Þórsarar enduðu í 4.sæti 1.deildar á síðustu leiktíð og er Agnar Darri fyrsti leikmaðurinn sem kemur til félagsins í vetur.

Agnar var kynntur til leiks í félagsheimili Þórs í kvöld og við sama tilefni undirritaði unglingalandsliðsmaðurinn Birkir Heimisson nýjan samning við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.