Fotbolti.net
20.12.13 - 13:32
Magnús Már Einarsson

Luis Suarez gerir nýjan samning við Liverpool (Staðfest)

Luis Suarez gerir nýjan samning við Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Liverpool

Luis Suarez hefur skrifað undir nýjan langtíma samning við Liverpool en þetta staðfesti félagið nú rétt í þessu. Samningurinn gerir Suarez að launahæsta leikmanni í sögu Liverpool.
Eftir að hafa verið ítrekað orðaður við Arsenal og Real Madrid í sumar þá náði Liverpool að halda Suarez innan sinna raða.

Þessi 26 ára gamli Úrúgvæi hefur farið á kostum í ensku úrvalsdeildinni í vetur en hann er markahæstur í deildinni með 17 mörk í 11 leikjum. Hann hefur nú í kjölfarið skrifað undir nýjan samning við félagið.

,,Ég er ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning við Liverpool og að framtíð mín sé tryggð,\" sagði Suarez eftir að hann skrifaði undir.

,,Stuðningurinn sem hef fengið hjá stuðningsmönnum Liverpool hafði áhrif á ákvörðun mína. Ég er svo stoltur að spila fyrir þeirra hönd.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.