Fotbolti.net
20.12.13 - 22:37
Hafliði Breiðfjörð

Þórður Birgisson í Þór (Staðfest)

Þórður og Magnús Ingi Eggertsson úr leikmannaráði Þórs við undirskriftina.

Þórður og Magnús Ingi Eggertsson úr leikmannaráði Þórs við undirskriftina.

Canon

Mynd: Vefur Þórs

Framherjinn Þórður Birgisson er genginn til liðs við Þór en hann lék með ÍA og KF á nýliðnu sumri.

Þór staðfesti þetta á vef sínum í kvöld en þar kemur einnig fram að Atli Jens Albertsson og Kristinn Þór Björnsson hafi skrifað undir nýja samninga við félagið.
Þórður lék framan af sumri með ÍA í Pepsí-deildinni en síðari hluta mótsins lék hann með KF í 1. deildinni. Þórður sem er þrjátíu ára gamall á að baki 202 leiki í fyrstu, annarri og efstu deild og hefur skorað 83 mörk.

Þórður hefur leikið með ÍA og HK í efstu deild og þá hefur hann spilað með KF og KS/Leiftri.

Þeir Atli Jens Albertsson og Kristinn Þór Björnsson skrifuðu undir nýja samninga við Þór en báðir voru þeir fyrir á samningi hjá félaginu en samningar þeirra runnu út í haust. Atli Jens hefur verið fastamaður í leikmannahópi Þórs en Kristinn Þór lék með félaginu í 1. deildinni 2012 en lék sem lánsmaður með Dalvík/Reyni í sumar. Samningar Atla og Kristins eru til tveggja ára en samningur Þórðar er til eins árs.

Heimasíða Þórs óskar leikmönnunum til hamingju og sérstaklega bjóðum við Þórð Birgisson velkominn til Þórs og vonum að hann eigi eftir að eiga góða tíma hjá Þórs.

Heimild: Vefur Þórs

Kristinn, Þórður og Atli Jens.

Kristinn, Þórður og Atli Jens.

Canon

Mynd: Vefur Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.