Fotbolti.net
20.12.15 - 10:58
Arnar Geir Halldórsson

Guardiola hættir með Bayern - Ancelotti tekur við (Staðfest)

Á förum frá Bayern

Á förum frá Bayern

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Pep Guardiola mun ekki framlengja samning sinn við Bayern Munchen og mun því yfirgefa félagið eftir tímabilið.
Carlo Ancelotti mun taka við starfinu en þetta staðfestir Karl-Heinz Rumenigge, stjórnarmaður hjá Bayern Munchen við þýska dagblaðið Bild.

„Við erum þakklátir Guardiola fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið og vonum að hann skili fleiri stórum sigrum á þessu tímabili.\"

„Með Ancelotti fáum við mjög sigursælan þjálfara til Bayern og við hlökkum mikið til að vinna með honum,\"
segir Rumenigge.

Ancelotti tók sér frí frá fótboltanum eftir að hafa verið rekinn frá Real Madrid eftir síðasta tímabil en hann stýrði PSG þar á undan og hefur stýrt stórliðum á borð við AC Milan, Juventus og Chelsea.

Óvíst er hvað verður um Pep Guardiola en líklegt þykir að hann sé á leið í ensku úrvalsdeildina og hafa Manchester liðin tvö helst verið nefnd til sögunnar ásamt Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.