20.12.15 - 14:40
Arnar Geir Halldórsson
Jurgen Kramny ráðinn stjóri Stuttgart (Staðfest)

Jurgen Kramny

Mynd: Getty Images

Jurgen Kramny

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Stuttgart hefur samið við Jurgen Kramny um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins.
Samningurinn gildir til ársins 2017 en Kramny var fyrst ráðinn tímabundið eftir að Alexander Zorniger var rekinn á dögunum.
Stuttgart er einu sæti fyrir ofan fall en liðið er taplaust í síðustu fjórum leikjum undir stjórn Kramny og hefur hann nú verið verðlaunaður með langtímasamning.
Kramny þekkir vel til hjá félaginu enda hefur hann verið í þjálfarateymi félagsins frá árinu 2010. Þá lék hann einnig með liðinu á sínum tíma og var hluti af meistaraliðinu árið 1992 þar sem Eyjólfur Sverrisson var í lykilhlutverki.