Fotbolti.net
21.01.13 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Eriksson til starfa hjá Al Nasr (Staðfest)

Eriksson til starfa hjá Al Nasr (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sven-Göran Eriksson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englendinga, hefur verið ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi hjá Al Nasr.

Al Nasr er lið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og er knattspyrnustjóri þess fyrrverandi landsliðsmarkvörður Ítalíu, Walter Zenga.
Eriksson fékk fjölmörg tilboð og var talið líklegast að hann gengi til liðs við 1860 Munchen í Þýskalandi en svo er ekki.

Eriksson skrifaði undir 18 mánaða samning og sagði að ást hans á knattspyrnu hafi verið ástæðan fyrir því að hann tók starfinu.

Sven-Göran hefur stýrt liðum á borð við Gautaborg, Benfica, Lazio, Englandi, Manchester City, Mexíkó og Fílabeinsströndinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.