Fotbolti.net
21.01.13 - 17:30
Daníel Freyr Jónsson

Fraizer Campbell farinn til Cardiff (Staðfest)

Fraizer Campbell.

Fraizer Campbell.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Fraizer Campbell er genginn í raðir Cardiff í Championship-deildinni frá Sunderland.
Hann skrifar undir samning til ársins 2016 hjá welska félaginu sem stefnyr nú hraðbyr að átt að úrvalsdeildinni. Liðið er með 10 stiga forskot á toppi deildarinnar.

Campbell kemur til með að veita meðal annars Heiðari Helgusyni samkeppni um framherjastöður félagsins, en með liðinu leikur einnig miðjumaðurinn Aron Einar Gunnarsson.

Campbell er 25 ára gamall og hafði verið í herbúðum Sunderland frá árinu 2009. Áður lék hann með Manchester United, þar sem hann kom upp í gegnum unglingastarf félagsins.

Hann hafði skoraði 1 mark í 15 leikjum með Sunderland á tímabilinu, en talið er að Cardiff hafi greitt um 650.000 pund fyrir framherjann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.