21.01.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Claudio Beauvue til Celta Vigo (Staðfest)

Kominn til Spánar

Mynd: Getty Images

Kominn til Spánar

Mynd: Getty Images
Spænska úrvalsdeildarliðið Celta Vigo hefur gengið frá kaupum á Claudio Beauvue frá Lyon.
Celta Vigo borgar 5 milljónir evra fyrir þennan 27 ára gamla framherja en hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í gær þegar Celta gerði markalaust jafntefli við Atletico Madrid í 8-liða úrslitum bikarsins.
Beauvue staldraði því stutt við hjá Lyon en hann var keyptur til félagsins síðasta sumar eftir að hafa slegið í gegn með Guingamp í franska boltanum.
Þrátt fyrir fá tækifæri í byrjunarliði Lyon tókst Beauvue að skora átta mörk fyrir Lyon á þessari leiktíð en mun nú hjálpa Celta Vigo í baráttunni um Evrópusæti.
Celta Vigo hóf tímabilið af miklum krafti og var lengi vel í baráttu um toppsætið við Barcelona og Real Madrid en situr nú í 5.sæti La Liga.