21.01.16 - 18:31
Ívan Guðjón Baldursson
Inaki Williams kostar 38 milljónir (Staðfest)

Inaki Williams er 21 árs gamall og á fjóra leiki að baki fyrir U21 árs lið Spánverja.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn eftirsótti Inaki Williams var að framlengja samning sinn við Athletic Bilbao til ársins 2021.
Í samningnum er kaupákvæði sem segir að leikmaðurinn sé falur fyrir 50 milljónir evra, eða 38 milljónir punda.

Liverpool og Tottenham hafa sýnt Williams mikinn áhuga og er hann eftirsóttur af liðum úr öllum helstu deildum Evrópu.
Williams var magnaður hjá B-liði Bilbao og braust þannig inn í aðalliðið þar sem hann er orðinn fastur byrjunarliðsmaður.
Hann spilar á hægri kanti með Bilbao og hefur skorað 7 mörk í 32 deildarleikjum fyrir félagið. Með B-liði Bilbao spilaði hann sem fremsti maður og skoraði 21 mark í 32 leikjum.