21.01.16 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ivanovic búinn að framlengja við Chelsea (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
<i>Sky Sports</i> greinir frá því að serbneski varnarmaðurinn Branislav Ivanovic er búinn að framlengja samning sinn við Chelsea um eitt ár.
Ivanovic er því samningsbundinn Chelsea til 2017 en margir stuðningsmenn félagsins hafa verið gríðarlega ósáttir með hans framlag á tímabilinu.
Ivanovic er því samningsbundinn Chelsea til 2017 en margir stuðningsmenn félagsins hafa verið gríðarlega ósáttir með hans framlag á tímabilinu.
Ivanovic verður 32 ára eftir mánuð og hefur verið lykilmaður hjá Chelsea undanfarin ár, en hann kom til félagsins úr rússnesku deildinni árið 2008.
Varnarjaxlinn á 83 landsleiki að baki fyrir Serbíu og 232 deildarleiki fyrir Chelsea og skorar hann að meðaltali í tíunda hverjum leik.
Varnarjaxlinn á 83 landsleiki að baki fyrir Serbíu og 232 deildarleiki fyrir Chelsea og skorar hann að meðaltali í tíunda hverjum leik.
