Fotbolti.net
21.01.16 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð

Maria Selma Haseta í FH (Staðfest)

Maria Selma Haseta í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Meistaraflokkur kvenna hjá FH fékk liðsstyrk í dag þegar Maria Selma Haseta gekk til liðs við félagið.
Hún hefur skrifað undir samning við FH og mun leika með liðinu á næsta tímabili í Pepsí deild kvenna.

Maria Selma lék með FH sumarið 2014 í Pepsí deildinni en gekk til liðs við Val fyrir síðasta tímabil.

Maria Selma er öflugur varnarmaður sem hefur leikið 83 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 22 mörk. Einnig á hún að baki 10 leiki fyrir yngri landslið Íslands en hún er uppalin hjá Sindra á Hornafirði.

Orri Þórðarson þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH er ánægður með komu Mariu Selmu til FH.

„Við erum mjög ánægð með að fá Mariu Selmu til okkar á nýjan leik. Hún er kraftmikill og öflugur leikmaður sem getur orðið enn betri. Hún kemur sannarlega til með að styrkja hópinn hjá okkur í þeirri baráttu sem framundan er í Pepsí deildinni. Þetta eru því góðar fréttir fyrir okkur FH-inga en við ætlum að halda áfram að styrkja liðið okkar fyrir komandi leiktið með 2-3 leikmönnum“.

Fleiri lið voru að reyna að ná í Mariu Selmu fyrir næstu leiktíð en hún ákvað á endanum að ganga til liðs við FH á nýjan leik. Maria Selma er líka spennt fyrir því að koma aftur í FH.

„Já, ég hlakka til að spila með FH á nýjan leik. Þar leið mér vel á sínum tíma og fékk mjög góða reynslu þar. Ég finn að það er metnaður hjá FH og vonandi tekst okkur að gera vel á næsta sumar“.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.