21.01.16 - 21:43
Ívan Guðjón Baldursson
Mauro Zarate til Fiorentina (Staðfest)

Zarate hefur leikið yfir 120 leiki í ítölsku A-deildinni.

Mynd: Getty Images

Fiorentina er búið að ganga frá kaupum á Mauro Zarate, argentínskum sóknarmanni sem kemur frá West Ham.
Zarate gaf fyrr í dag út yfirlýsingu þess efnis að hann væri að yfirgefa Hamrana eftir átján mánuði hjá félaginu.

Zarate þekkir ítölsku deildina nokkuð vel, en hann var fyrst fenginn til Evrópu þegar Lazio greiddi rúmlega 15 milljónir punda til að fá leikmanninn til sín úr argentínsku deildinni.
Zarate er 28 ára og er fenginn til að leysa skarðið sem Giuseppe Rossi skilur eftir í sóknarlínu Fiorentina.
Fiorentina er í harðri toppbaráttu í ítölsku deildinni, sex stigum frá toppliði Napoli og aðeins búið að fá sex stig af síðustu fimmtán mögulegum.