21.01.16 - 09:00
Arnar Geir Halldórsson
Yann Kermorgant til Reading (Staðfest)

Farinn

Mynd: Getty Images

Farinn

Mynd: Getty Images
Franski sóknarmaðurinn Yann Kermorgant hefur yfirgefið nýliða Bournemouth til að ganga til liðs við B-deildarlið Reading.
Kermorgant skoraði 15 mörk og lagði upp 9 þegar Bournemouth komst upp úr B-deildinni á síðustu leiktíð en hefur ekki fengið tækifæri í byrjunarliðinu í úrvalsdeildinni en hefur sjö sinnum komið inn á sem varamaður.
Bournemouth hefur bætt við sig öflugum sóknarmönnum í janúarglugganum og því ljóst að tækifærum Kermorgant var ekki að fara að fjölga.
Þessi 34 ára gamli leikmaður gerir eins og hálfs árs samning við Reading sem siglir lygnan sjó í B-deildinni þar sem liðið hefur 34 stig í 14.sæti.