Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. janúar 2021 14:09
Magnús Már Einarsson
Karólína: Getur ekki sagt nei við Bayern
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ef að lið sem er eins sterkt og kvennalið Bayern vill fá þig þá getur þú ekki sagt nei," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir í viðtali við heimasíðu Bayern Munchen í dag.

Bayern, sem er á toppi þýsku Bundesligunnar, keypti Karólínu í sínar raðir frá Breiðabliki í vikunni.

„Ég var að leita að nýrri áskorun fyrir mig og ég er ánægð með að hafa fundið hana í Munchen. Ég get ekki beðið eftir að öðlast nýja reynslu í Þýskalandi."

„Þetta er heiður og ég er mjög ánægð með að geta spilað með FC Bayern Munchen í framtíðinni."

„Það hefur alltaf verið draumur minn að vera atvinnumaður í fótbolta í svona háum gæðaflokki. Leikmennirnir hér eru á meðal þeirra bestu í heimi og ég er spennt fyrir því að hefja þennan nýja kafla í lífi mínu og verða hluti af Bayern fjöskyldunni."


Smelltu hér til að sjá viðtalið í heild

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner