Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. janúar 2023 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Fulham opið fyrir því að lána Mbabu
Mynd: Fulham
Svissneski landsliðsmaðurinn Kevin Mbabu gæti verið á förum frá Fulham aðeins hálfu ári eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Wolfsburg.

Fulham festi kaup á Mbabu síðasta sumar fyrir 6,3 milljónir punda en sá hefur ekki tekist að sannfæra Marco Silva, stjóra liðsins.

Mbabu hefur aðeins komið við sögu í sex deildarleikjum á þessari leiktíð og er það talið líklegt að hann yfirgefi félagið í þessum glugga.

Félög í Frakklandi og Þýskalandi eru áhugasöm um að fá hann á láni út tímabilið.

Eina vandamálið er launapakki svissneska hægri bakvarðarins en hann þénar 70 þúsund pund á viku hjá Lundúnarliðinu.

Mbabu, sem er 27 ára gamall, var eitt sinn á mála hjá Newcastle United en kom lítið við sögu vegna þrálátra meiðsla. Hann var látinn frá félaginu árið 2017 eftir að hafa spilað einungis fimm leiki í úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner