21.02.13 - 13:20
Magnús Már Einarsson
Arnar Aðalgeirsson í Hauka (Staðfest)

Arnar Aðalgeirsson (t.h.) handsalar samning við Jón Björn Skúlason, formann knattspyrnudeilar Hauka.

Mynd: Haukar

Arnar Aðalgeirsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Hauka á nýjan leik.
Þessi 19 ára gamli leikmaður fór frá Haukum til AGF fyrir tveimur árum en hann er nú kominn aftur á heimaslóðir.
Arnar, sem á leiki að baki með U17 og 19 ára landsliði Íslands, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka.

,,Arnar mun með hraða sínum ógna hvaða andstæðing sem er og gaman verður að fylgjast með því hvernig hann spjarar sig í 1. deildinni í sumar,\" segir á heimasíðu Hauka.
,,Það er mikið ánægjuefni fyrir Hauka að stærsti hluti leikmanna sem hefur farið frá félaginu á undanförnum tveimur árum hafa snúið til baka í félagið til að hjálpa því að komast aftur í deild þeirra bestu.\"
,,Óhætt er að segja að frábært andrúmsloft bíði okkar á Schenkervellinum og mikil eftirvænting eftir sumrinu.\"

Heimild: Heimasíða Hauka