21.02.13 - 20:00
Daníel Freyr Jónsson
Mikael Silvestre til Portland Timbers (Staðfest)

Mikael Silvestre.

Mynd: Getty Images

Mikael Silvestre.

Mynd: Getty Images
Franski varnarmaðurinn Mikael Silvestre hefur samþykkt að ganga í raðir Portland Timbers og mun hann leika með liðinu á komandi tímabili í MLS-deildinni.
Silvestre er 35 ára gamall fyrrverandi landsliðsmaður Frakka, en hann hefur verið án félags síðan fór frá Werder Bremen síðasta sumar.
Hefur hann nú skrifað undir samning til tveggja ára hjá Portland.
Ferill hans hófst hjá Rennes í heimalandinu, áður en hann gekk í raðir Inter árið 1998. Þar lék Silvestre í eitt ár áður en Manchester United keypti hann.
Lék hann lengst af með United og spilaði hann yfir 350 leiki með liðinu á 9 ára tímabili áður en hann gekk í raðir Arsenal.

Heimild: Portland Timbers