21.02.13 - 09:30
Daníel Freyr Jónsson
Nigel Reo-Coker í MLS-deildina (Staðfest)

Nigel Reo-Coker.

Mynd: Getty Images

Nigel Reo-Coker.

Mynd: Getty Images
Englendingurinn Nigel Reo-Coker hefur samþykkt að ganga í raðir Vancouver Whitecaps í MLS-deildinni.
Reo-Coker, sem er 28 ára gamall miðjumaður, hafnaði þar með samningstilboðum frá liðum á Englandi og í Evrópu til að fara til Vancouver.
Hann lék með Ipswich um skamman tíma fyrr á þessu tímabili, en lengst af lék Reo-Coker í ensku úrvalsdeildinni með West Ham, Aston Villa og Bolton.
Miðjumaðurinn ákvað síðan að yfirgefa Bolton síðasta sumar eftir að liðið féll úr úrvalsdeildinni og var hann þá án félags í hálft ár áður en hann fór til Ipswich.

Heimild: Sky Sports