Fotbolti.net
21.02.14 - 19:40
Daníel Freyr Jónsson

Rooney framlengir til 2019 og verður sendiherra félagsins (Staðfest)

Wayne Rooney ásamt David Moyes og Ed Woodward við undirskriftina.

Wayne Rooney ásamt David Moyes og Ed Woodward við undirskriftina.

Canon

Mynd: Heimasíða Man Utd

Englandsmeistarar Manchester United hafa staðfest að Wayne Rooney hafi framlengt samning sinn við félagið til ársins 2019.
Rooney hefur leikið með United frá árinu 2004 og hefur hann skorað 208 mörk í þeim 430 leikjum sem hann hefur spilað fyrir félagið. Hefur hann mikla möguleika á að verða markahæstur í sögu félagsins, en núverandi met á Bobby Charlton með 249 mörk.

Eftir að leikmannaferli Rooney lýkur mun hann taka til starfa sem sérstakur sendiherra félagsins á erlendri grundu, líkt og Bryan Robsons gegnir í dag.

Rooney verður 33 ára þegar nýji samningurinn rennur út og er hann talinn fá 300.000 pund í vikulaun.

Rooney er þar með orðinn launahæsti leikmaður í sögu Manchester United en félagið ákvað að leggja allt í að halda honum hjá sér enda eitt stærsta nafn leikmannahópsins.

Á ferli sínum hefur Rooney unnið enska meistaratitilinn fimm sinnum og einu sinni orðið Evrópumeistari.

Heimild: Heimasíða Man Utd

Rooney hefur skorað 208 mörk fyrir United.

Rooney hefur skorað 208 mörk fyrir United.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.