21.02.14 - 10:37
Magnús Már Einarsson
Thelma Björk í Selfoss frá Val (Staðfest)

Thelma Björk Einarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thelma Björk Einarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur fengið Thelmu Björk Einarsdóttur í sínar raðir frá Val en þetta kemur fram á Sunnlenska.is.
Thelma er 23 ára gömul, uppalin hjá Val og hefur leikið 79 leiki í efstu deild og bikar fyrir félagið en hún hefur unnið alla titla á Íslandi fyrir uppeldisfélag sitt og tekið þátt í Evrópukeppnum.
Undanfarin ár hefur hún verið í námi í Bandaríkjunum og leikið með liði Berkeley háskólans í bandaríska háskólaboltanum yfir vetrartímann.
Síðastliðið sumar sleit Thelma krossband en hún er óðum að jafna sig á meiðslunum og sér fram á að ná sínu allra besta formi á Selfossi í sumar að því er fram kemur á vef Sunnlenska.
Thelma er vinstri bakvörður en hún hefur leikið níu A-landsleiki auk tólf landsleikja fyrir yngri lið Íslands.
Thelma er annar leikmaðurinn sem Selfoss fær frá Val í vetur en landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir fór sömu leið á dögunum.

Heimild: Sunnlenska.is