21.02.14 - 12:43
Elvar Geir Magnússon
Wayne Rooney búinn að semja við Man Utd

Wayne Rooney verður áfram hjá Manchester United... á himinháum launum.

Mynd: Getty Images

Wayne Rooney er búinn að semja við Manchester United til fimm ára og fær 300 þúsund pund í vikulaun, 57 milljónir íslenskra króna.
Þessi 28 ára enski landsliðsframherji er nú samningsbundinn til júní 2019 en fyrrum samningur hans hefði runnið út á næsta ári.
Rooney er launahæsti leikmaður í sögu Manchester United en félagið ákvað að leggja allt í að halda honum hjá sér enda eitt stærsta nafn leikmannahópsins.
Sumir myndu flokka þetta undir örvæntingu til að sýna það út á við að félagið geti í raun haldið sínum bestu leikmönnum undir stjórn David Moyes þrátt fyrir dapurt gengi. Rooney hefur verið hjá United síðan hann kom frá Everton sumarið 2004.
Rooney hefur skorað 208 mörk í 430 leikjum fyrir Rauðu djöflana en allt stefndi á að hann væri á förum síðasta sumar. Chelsea gerði þá tilboð í hann en þeim var hafnað.
Manchester United er sem stendur ellefu stigum frá fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá því að Rooney hafi samþykkt nýjan samning en Manchester United á eftir að staðfesta þær fréttir. BBC er samt eins og flestir vita þekkt fyrir mikinn áreiðanleika og því hefði nánast verið hægt að setja (Staðfest) fyrir aftan fyrirsögnina.