Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. febrúar 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Cristopher Harrington tekur við Fram (Staðfest)
Christopher Harrington.
Christopher Harrington.
Mynd: Fram
Fram hefur ráðið Christopher Harrington sem þjálfara meistaraflokks kvenna og sem yfirþjálfara yngri flokka kvenna. Christopher, sem kemur frá Írlandi, hefur víða komið við á sínum þjálfaraferli.

Hann var aðstoðarþjálfari Þórs/KA í Pepsi Max deildinni 2018 og 2019 og á sama tíma þjálfari 2.fl.kv. hjá Þór/KA og hjá Hömrunum á Akureyri en 2.fl.kv. varð íslandsmeistari undir hans stjórn.

Hér á landi hefur hann einnig þjálfað hjá Vestra og Tindastól ásamt því að hafa starfað sem þjálfari bæði í Bandaríkjunum og á Írlandi. Nú síðast þjálfaði hann B71 í Færeyjum ásamt því að vera yfir unglingastarfi félagsins.

„Fram bindur miklar vonir við komu Christophers til félagsins. Kvennastarfið hefur nú flutt úr Safamýri í Úlfarsárdal og er það fyrsta skrefið í að flytja alla starfsemi Fram þangað," segir í tilkynningu frá Fram.

„Christopher mun skipuleggja og móta yngri flokka starfið á nýjum stað ásamt því að endurvekja meistaraflokk kvenna. Æfingar hjá meistaraflokki hefjast í næstu viku og verður fyrsta æfingin þriðjudaginn 25. febrúar kl. 18:00 á Framvellinum í Úlfarsárdal og eru leikmenn sem hafa áhuga á að mæta hvattar til að gera það eða hafa samband við Christopher á netfangið [email protected]."
Athugasemdir
banner
banner