Þróttur Vogum hefur fengið varnarmanninn reynda Hafþór Þrastarson í sínar raðir fyrir 2. deildina í sumar.
Hinn þrítugi Hafþór á sextán leiki að baki í efstu deild og 117 í næstefstu deild með FH, KA, Selfossi, Fram, Fjarðabyggð og Haukum.
Hann hætti að spila með Haukum um mitt síðastliðið sumar en hefur nú tekið skóna fram að nýju.

Hafþór hefur spilað með Þrótti í Fótbolta.net mótinu og verður löglegur þegar liðið mætir KV í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum í kvöld.
Athugasemdir